Lærum og leikum með hljóðin - Allt efnið

Lærum og leikum með hljóðin - Allt efnið

App Report, Market and Ranking Data
publisher
category
price
$7.99
Reviews
5 (4)
United States United States
Description
Öll íslensku málhljóðin eru kennd á lifandi og skemmtilegan hátt með fyrirmynd fyrir hvert og eitt hljóð. Heiti bókstafanna og hljóð þeirra eru kennd með íslenska fingrastafrófinu um leið og lestrarferlið er undirbúið. Á sama tíma er réttur framburður hljóða kenndur. Aðferðin byggir á áratuga reynslu talmeinafræðings með áherslu á að veita aðgengilega og faglega leiðsögn til foreldra og skóla.

Smáforritið er ætlað öllum barnafjölskyldum og fagfólki sem vilja veita börnum forskot á hljóðmyndun og undirbúa þau fyrir lestur. Tilvalið fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að æfa og læra íslensku hljóðin. Rannsóknir sýna marktækan mun á árangri nemenda í 1. bekk í hljóðkerfisvitund og bókstafaþekkingu auk betri getu í heildina á orðaforða þegar skipulega var unnið með Lærum og leikum með hljóðin og  Froskaleiki 1,2,3 á leikskólaaldri og í 1. bekk (Gudmundsdottir, 2014. Ævarsdóttir, 2016). Smáforritin Kids Sound Lab PRO og Frog games sem byggja á íslensku forritunum hafa fengið fjölda erlendra viðurkenninga hjá fagaðilum og foreldrum. Árið 2016 var Kids Sound Lab valið eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu af BETT. Árið 2017 fengu forrit Raddlistar 5 stjörnu gjöf og viðurkenningu hjá fagnefnd Educational App Store með afar lofsamlegum umsögnum.

Smáforritið, Lærum og leikum með hljóðin, tekur mið af því í hvaða röð íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni og hvernig auðveldast er að kenna hljóðin. Byrja má skipulega á auðveldari hljóðum sem koma fyrir hjá mjög ungum börnum og halda áfram yfir í þau hljóð sem erfiðara er að segja eða velja það hljóð sem æfa þarf sérstaklega hverju sinni.

Lærum og leikum með hljóðin er notað víða í leik- og grunnskólum á Íslandi og er sýnt í barnaefni Stöðvar 2 og um allan heim í Hopster appi Vodafone.

Efnistök forritsins byggja á samnefndum bókum og námsefni Bryndísar Guðmundsdóttur talmeinafræðings.

Lærum og leikum með hljóðin inniheldur:
- Talsetning/söngur Felix Bergsson og Védís Hervör Árnadóttir
- Íslenskar teikningar Búa Kristjánssonar og Höllu Sólveigar                                                                                                                                                      Þorgeirsdóttur
- 20 samhljóð í íslensku kynnt með táknmynd fyrir hljóðið 
- Sérhljóð í íslensku kynnt sérstaklega
- Röð samhljóða fylgir sömu röð og íslensk börn tileinka sér talhljóðin í máltökunni
- Hægt er að velja í aðalvalmynd hvaða hljóð er valið hverju sinni ef ekki er stuðst við erfiðleikaröðina
- Hægt er að fá lýsingu á talfærastöðu fyrir hvert hljóð 
- Öll hljóðin eru æfð í hljóðaleik með hljóðakeðjum; samhljóð með sérhljóði til að tryggja að barnið nái réttu hljóði
- Hljóðin æfð í framstöðu orða nema þau hljóð sem koma eingöngu fyrir í miðju og aftast í orðum
- Ð, NG og ,,mjúka” G, eru æfð aftast og í miðju orða
- R býður upp á meiri aðlögun og fleiri orð í framstöðu orða til að æfa (algengt að börn eigi erfitt með framburð R- hljóðsins)
- Þrír gagnvirkir leikir í framhaldi af orðaæfingum þar sem                                                                                       myndir koma á víxl til frekari æfinga
- Hrós veitt reglulega í forritinu
- Upptaka leyfð á orðum og setningum til að æfa og hlusta
- Skráning nemenda: nafn, aldur, kyn og netfang
- Stigagjöf inni í forritinu
- Árangur sýndur í %
- Skráning athugasemda inni í forritinu
- Upplýsingar um stöðu og athugasemdir má senda í netpósti
- Hægt er að prenta út samantekt niðurstaða (air print)
- Vistun með dropbox

Við þökkum eftirtöldum stuðningsaðilum fyrir að stuðla að betri málþroska og læsi íslenskra barna: 

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Barnamenningarsjóður styrktu íslenska útgáfu Lærum og leikum með hljóðin, í smáforrit fyrir iPad (2013).

Eftirtalin fyrirtæki gerðu aðlögun smáforritanna í símaútgáfu mögulega: Novator, Norðurál, Hagar, KPMG Íslandi og HS Orka (2015).

Frekari upplýsingar:
http.www.youtube/laerumogleikum 
www. laerumogleikum.is      www. kidssoundlab.com
Category Ranking
Not enough information to display the data.
Review Breakdown
Not enough information to display the data.
Screenshots
Download & Revenue
DOWNLOAD 15Apr 2024Worldwide
REVENUEN/AApr 2024Worldwide
download revenue
About
Bundle Id
com.kidssoundlab.playandlearnicelandicpro
Min Os. Version
8.0
Release Date
Wed, Aug 7, 2013
Update Date
Fri, Jun 2, 2017
Content Rating
Has IMessage
No
Support Watch
No
Support Siri
No
File Size
431.41MB
Has Game Center
No
Family Sharing
No
Support Passbook
No
Supported Languages
English
What's New
version
2.6
updated
6 years ago
Við erum alltaf á tánum að bæta virknina hjá okkur. Við fengum nýlega 5 stjörnu viðurkenningu frá Educational App Store með lofsamlegum ummælum frá fagnefndinni þeirra og auðvitað erum við ennþá í skýjunum með Bett 2016 viðurkenninguna og val um að vera eitt af sex bestu forritum í menntun á heimsvísu. Rannsóknir sýna góðan árangur af notkun forritsins og forritið er nú uppfært svo allir njóti með okkur. Góðar stundir í að læra og leika!
Newsletter

Subscribe our newsletter and get useful information every week.

Stay Ahead of the Market with StoreSpy
Never miss opportunities
Watch your competitors closely
Start boosting your app right away
Start Now
stay a head