App is deprecated.Last check on May 9, 2024.
Description
Dýr í hættu er gagnvirkt námsefni í tölfræði fyrir börn á aldrinum 9-12 ára þar sem barnið fer í hlutverk aðstoðarmanns vísindastofnunar sem vinnur við að rannsaka og skrásetja líf og umhverfi dýra í útrýmingahættu. Forritið er byggt upp á raunhæfum verkefnum í tölfræði og nýtist best sem viðbótarefni við hefðbundna tölfræðikennslu. Þema forritsins er dýr í útrýmingarhættu og það er fullt af upplýsingum um dýr og umhverfismál. Það hentar því vel í þemavinnu um umhverfismál eða dýrafræði, eða sem afþreying fyrir krakka sem hafa áhuga á dýrum. UPPBYGGING Efninu er skipt í níu kafla eða borð. Hver kafli fjallar um ákveðið dýr eða annað efni sem tengist þemanu. Í hverjum kafla er einnig unnið með afmörkuð tölfræðihugtök. Í kaflanum Ísbirnir er t.d. unnið með tíðnitöflur, tíðni og tíðasta gildi en í köflunum Leðurskjaldbökur og Nashyrningar er unnið með súlurit. Kaflarnir eru eftirfarandi: Ísbirnir, Leðurskjaldbökur, Pöndur, Nashyrningar, Górillur, Tígrisdýr, Staða tegunda, Náttúra í hættu og Veiðiþjófar. Farið er í eftirfarandi tölfræðileg hugtök: tíðnitöflur, tíðni, tíðasta gildi, súlurit, hæsta gildi, lægsta gildi, tíðasta gildi, meðaltal, miðgildi, línurit, skífurit, Í upphafi hvers kafla fær notandinn upplýsingar um það dýr eða efni sem kaflinn fjallar um. Þegar kynningunni er lokið á notandinn að leysa tölfræðileg verkefni um efni kaflans. Í verkefnunum þarf stundum að svara spurningum upp úr gögnum og tilbúnum ritum eða búa til rit úr gögnum. Sem dæmi má nefna að í pöndukaflanum á meðal annars að finna út hvað einn pönduhópur borðar mikinn bambus á dag að meðaltali og í nashyrningakaflanum á að búa til súlurit yfir hornastærð nokkurra nashyrninga. Milli verkefna í hverjum kafla birtast áhugaverðar upplýsingar um viðfangsefnið. Þegar kafla er lokið fær notandinn viðurkenningu í formi upplýsingaspjalds um viðeigandi dýr. Upplýsingaspjaldið birtist í dýrabókinni sem má opna á forsíðu forritsins. Inn í forritinu er að finna ítarlega hjálp, bæði til að leiðbeina við notkun á forritinu og til að útskýra þau tölfræðilegu hugtök sem unnið er með. *** Vissir þú að á síðustu 500 árum hafa um það bil 800 dýrategundir dáið út? ***
Category Ranking
Review Breakdown
Screenshots
Download & Revenue
About
Bundle Id
com.gebokano.DyrinITolumMin Os. Version
9.0Release Date
Mon, Dec 7, 2015Update Date
Mon, Feb 10, 2020Content Rating
Has IMessage
NoSupport Watch
NoSupport Siri
NoFile Size
143.18MBHas Game Center
NoFamily Sharing
NoSupport Passbook
NoSupported Languages
IcelandicWhat's New
version
1.04updated
4 years agoNewsletter
Subscribe our newsletter and get useful information every week.
Publisher's Other Apps
Other Education Apps
Stay Ahead of the Market with StoreSpy
Start NowNever miss opportunities
Watch your competitors closely
Start boosting your app right away